Mér finnst stiletto neglurnar ótrúlega flottar en þær eru búnar að vera ansi vinsælar undanfarið. Þær eru misýktar, en mér finnst þær þurfa að vera hæfilega langar og alls ekki of oddhvassar. Þær koma í allskonar útfærslum, flottastar finnst mér þær sem eru með french manicure ívafi eins og fyrstu myndirnar sýna en þær koma líka í allskonar litum, mynstrum og skreytingum.
fimmtudagur, 31. október 2013
mánudagur, 28. október 2013
HNITAPRINT
Hnitaprint er búið að vera úti um allt í haust. Ég tók eftir því hvað þetta var áberandi í búðunum í London í ágúst, sá þetta m.a. í Primark, H&M og Forever 21, og eru þessar búðir nú þekktar fyrir að fylgja nýjustu trendunum. Hnitamynstrið er líka búið að vera áberandi hjá tískubloggurum og á street style síðum úti í heimi. Mér finnst þetta skemmtilega öðruvísi mynstur, fín tilbreyting frá röndunum sem eru búnar að vera undanfarið.
Þessa keypti ég mér í H&M í ágúst og er ótrúlega ánægð með hana
sunnudagur, 27. október 2013
SUNNUDAGS BRUNCH
Sunnudagarnir byrja svo miklu betur þegar á boðstolnum eru amerískar pönnukökur, síróp og fersk jarðaber eða bláber.
Þessar morgunstundir um helgar eru eitt af þessum litlu hlutum sem gera
lífið svo miklu betra :)
laugardagur, 26. október 2013
föstudagur, 25. október 2013
HREINDÝRAHÖFUÐ
Ég þrái eitt svona hreindýrahöfuð á vel valdan vegg hjá mér! Þau sóma sér til dæmis vel yfir rúmi, sófa, sjónvarpi eða skrifborði. Ég myndi samt
fá valkvíða með litina því þau fást í fullt af litum, annað hvort einlit
eða með lituð horn. Hægt að skoða þau betur hér
föstudagur, 11. október 2013
LIST MEÐ LÍMI
Ég hef verið að rekast á flottar myndir þar sem við sögu kemur strigi, límbyssa og hvít málning. Límið er notað til að gera útlínur, það er svo látið þorna og að lokum málað yfir. Þá myndast "úthleypt" mynd á strigann - mjög stílhreint og smart. Þessa hugmynd er einnig hægt að nota t.d. á vasa eða krukkur.
Það kemur einnig mjög vel út að líma tréstafi á striga eða viðarplötu og mála svo yfir:
fimmtudagur, 10. október 2013
EINFALDAR HÁRGREIÐSLUR
Því miður þá nenni ég alls ekki að stússast mikið með hárið á mér, sérstaklega ef um er að ræða flóknar hárgreiðslur eða fléttuútfærslur. Það gerir þó mikið fyrir útlitið að gera eitthvað fínt í hárið, og finnst mér alltaf jafn gaman að sjá einfaldar og flottar hárgreiðslur - fullkomið fyrir óþolinmóðu mig. Hér eru nokkrar hugmyndir sem ættu ekki að krefjast of mikilla hárgreiðsluhæfileika!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)