Hafragrautur með chia fræjum
Ég set 1 dl grófa hafra, 1 msk chia fræ og 2 dl vatn í pott og læt suðuna koma upp, hræri vel í á meðan.
Epla- & kanilgrautur
Set rúsínur í pottinn og leyfi þeim að hitna í grautnum. Flysja 1/2 epli (eða 1 lítið) og sker í litla bita. Dreifi yfir grautinn, ásamt kanil og möndluflögum.
Bláberjagrautur
Ég nota alltaf frosin bláber, tek út ca 1/2 bolla áður en ég græja grautinn. Þegar grauturinn er tilbúinn set ég örlítið af agave sírópi út í hann, hræri og bæti svo bláberjunum út í. Þar sem grauturinn er heitur þá afþýðast berin fljótt. Stundum strái ég einnig kanil og möndluflögum út á.
Banana & hnetusmjörsgrautur
Set 2 tsk af lífrænu hnetusmjöri út í heitann grautinn og hræri vel. Stappa svo 1/2 banana (eða 1 lítinn) og blanda út í. Þessi er guðdómlega góður!
Súkkulaði næturgrautur
Ef ég veit að ég mun ekki hafa tíma til að elda hafragraut um morguninn þá geri ég stundum næturgraut. Þá set ég 1 dl af grófum höfrum í krukku, ásamt 1 msk chia fræ og 2 dl möndlumjólk. Set einnig 1/2 tsk vanilludropa, 1 tsk kakóduft og nokkra dropa af stevíu með súkkulaðibragði. Öllu blandað saman og sett í ísskáp yfir nótt. Strái svo möndluflögum yfir um morguninn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli