miðvikudagur, 14. ágúst 2013

SKINNY ÍSKAFFI

Þó ég sé ekki mikil kaffimanneskja þá finnt mér kaffidrykkir sem búið er að blanda við mjólk og önnur bragðefni mjög góðir. Frappó og ískaffi kemur þar sterkt inn yfir sumartímann. Slíkir kaffidrykkir geta þó verið ansi hitaeiningarríkir með tilheyrandi feitri mjólk, rjóma og sírópum.
Hér er afar einföld og hitaeiningasnauð uppskrift af ískaffi sem tekur enga stund að græja. Magn hvers hráefnis fer einfaldlega eftir smekk hvers og eins.


"Skinny" ískaffi
Möndlumjólk (einnig hægt að nota hrísmjólk, sojamjólk, fjörmjólk o.s.frv)
Sterkt kaffi
Sykurlaust síróp (hægt að nota vanillu, heslihnetu, karamellu, súkkulaði, piparmyntu o.s.frv.) 
Stevía ef vill (t.d. hægt að nota stevia dropa með bragðefni)
Klakar

Setjið klaka í glas, blandið svo öllu hinu saman og hellið í glasið.  

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...