sunnudagur, 4. ágúst 2013

VATNSMELÓNU- OG JARÐABERJADRYKKUR

Þessi er einastaklega ferskur, einfaldur og upplagður yfir sumartímann. Vatnsmelóna er eitt af mínu uppáhalds í ávaxtadeildinni þannig þessi drykkur svíkur ekki.



Innihald (magn eftir smekk):
Vatnsmelóna
Jarðaber, fersk eða frosin
Kókosvatn

Allt sett í blandara til að fá smoothie áferð. Þeir sem vilja hafa drykkinn meira fljótandi geta sett ávextina í safapressu og blandað svo saman við kókosvatn í blandaranum. Svo er gott að setja klaka út í drykkinn svo hann haldist kaldur.

Njótið

Engin ummæli:

Skrifa ummæli

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...