Þó ég sé ekki hrifinn af antík stíl eða gömlum hlutum yfir höfuð þá finnst mér samt gaman að skoða hugmyndir um hvernig er hægt að nýta gamla hluti og gera eitthvað nútímalegt úr þeim. Mér finnst t.d. geðveik hugmynd að nýta gamlar styttur eða leikföng í dýralíki og spreyja í einhverjum skemmtilegum lit, jafnvel gylltu eða silfruðu. Dýrin er svo m.a. hægt að nota sem skraut eða bókastoð.
föstudagur, 20. september 2013
miðvikudagur, 18. september 2013
SWEET CHILI RÆKJUPASTA
Ég er farin að hafa miklu meira gaman af því að elda nú orðið, sérstaklega finnst mér skemmtilegt að elda mat í hollari kantinum, sem þarf þó auðvitað líka að leika við bragðlaukana. Ég elda ýmist úr því sem til er í ísskápnum hverju sinni eða eftir uppskriftum sem ég finn og breyti svo eftir mínum matarsmekk. Í þar síðustu viku gerði ég ljúffengt sweet chili rækjupasta og birti hér uppskrift af því ef einhver hefur áhuga. Þar sem ég er ansi mikill dassari í eldamennsku þá getur hver og einn fundið út magn eftir sínum smekk.
Rækjur
Heilhveiti/spelt penne pasta
Harðsoðin egg, skorin í bita
2-3 hvítlauksgeirar, smátt saxaður
Rauð paprika, skorin í litla bita
Blaðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
Avókadó, skorinn í bita
Möndluflögur
Klettasalat
1. Pastað er soðið samkvæmt leiðbeininum á pakkanum.
2. Möndluflögur eru ristaðar á pönnu.
3. Hvítlaukur, blaðlaukur og paprika er mýkt á pönnu með ólívuolíu. Rækjunum er svo bætt á pönnuna ásamt sweet chili sósu og látið malla. Pastanu svo bætt út í og öllu blandað vel saman.
4. Klettasalat er sett á disk, vænn skammtur af pastanu sett út á salatið, ásamt avókadó, möndluflögum og eggjum.
Voila!
þriðjudagur, 17. september 2013
FORSTOFUBORÐ
Ameríkanarnir eru duglegir við að notast við borð í forstofuna, svokölluð console tables. Borðin, sem eru há og grunn, liggja upp við vegg og oftast með stórum spegli fyrir ofan. Markmið þeirra er að leggja frá sér helstu nauðsynjar við heimkomu, og spegla sig áður en maður fer út. Því er afar hentugt að hafa skál á borðinu fyrir lykla, veski og ýmislegt annað sem maður þarf að hafa til taks á leið út. Svo er nauðsynlegt upp á lúkkið að vera með blómavasa með ferskum blómum og/eða fallegan lampa á borðinu.
Eins og gefur að skilja njóta forstofuborð sín best þar sem stórar forstofur eru til staðar, og því þarf forstofuborðalöngun mín eitthvað að bíða. Á meðan læt ég mig dreyma með þessum myndum.
Eins og gefur að skilja njóta forstofuborð sín best þar sem stórar forstofur eru til staðar, og því þarf forstofuborðalöngun mín eitthvað að bíða. Á meðan læt ég mig dreyma með þessum myndum.
mánudagur, 16. september 2013
BASIC HVERSDAGSOUTFIT
Nú þegar skólinn er byrjaður og hausttískan komin í búðirnar dett ég í aðeins meiri kósýgír hvað föt varða. Litirnir verða dempaðri - svartur, hvítur, grár, beige, army grænn og vínrauður eru því mest áberandi í vetrarskápnum. En þó að fötin séu basic þá finnst mér skipta máli hvernig þau eru pöruð saman, ásamt réttum fylgihlutum og skóm. Það gerir líka mikið að mixa mismunandi áferðum eins og leðri, siffon og bómul.
Ég er búin að vera að safna saman hugmyndum af Pinterest af flottum hversdags outfittum sem eru einföld en jafnframt töff.
Ég er búin að vera að safna saman hugmyndum af Pinterest af flottum hversdags outfittum sem eru einföld en jafnframt töff.
Hinn fullkomni basic fataskápur
sunnudagur, 15. september 2013
RUN
Ég þarf alvarlega á sparki í rassinn að halda að fara að mæta í ræktina. Ræktin er svo mikill vani, það þarf einfaldlega að koma því inn í rútinuna að mæta og eftir nokkrar vikur er orðinn sjálfsagður hlutur að fara. Það er svo aftur á móti mjög auðvelt að detta úr rútínunni aftur ef maður tekur sér pásu. Slíkar pásur enda yfirleitt alltaf lengri en þær áttu að vera og svo er maður aftur kominn á byrjunarreit með að koma sér af stað. Það er allavega mín reynsla. En ég ætla mér að komast í gott hlaupaform aftur, stundum þarf maður smá motivation til að koma hugsunarhættinum í lag.
föstudagur, 13. september 2013
MAKEUP SKIPULAG
Ég tók til inná baði hjá mér um síðustu jól og fór í gegnum allar
snyrtivörurnar mínar, sem eru nú reyndar ekkert mjög margar. Þær voru
svo illa skipulagðar að ég var að finna sumt sem ég mundi ekki eftir að
eiga, ég þurfti
því að skipuleggja þetta aðeins betur. Ég henti ýmsum gömlum snyrtivörum en hélt þeim helstu sem ég að nota að staðaldri.
Þetta glæra plastbox er úr Rúmfatalagernum og
kostar 2.495 kr. Ég ætlaði alltaf
að nota það fyrir hluta af skartinu mínu en það hentar mjög vel fyrir
snyrtivörurnar. Stærri hluti eins og meik o.þ.h. geymi ég annars staðar,
og svo geymi ég flesta bursta í glasi.
Ég á svipað varalitabox sem fékkst á tímabili í Söstrene Grene
Eining úr IKEA
Snilldaraðstaða fyrir make-up fíkla
fimmtudagur, 12. september 2013
MATTAR NEGLUR
Mattar neglur hafa verið að riðja sér til rúms í naglatískunni. Til þess þarf ekki endilega að nota lituð mött lökk, heldur er einfaldlega hægt að nota matt yfirlakk, en þau fást frá ýmsum naglalakkamerkjum. Það munar mikið að geta breytt áferðinni á litnum með einni umferð af möttu lakki. Einnig er hægt að búa til mynstur með því að lakka hluta af nöglinni með möttu og láta hluta af henni vera glansandi.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)