Epli með hnetusmjöri
Grænmeti (agúrka, gulrætur, sellerí, paprika) með hollri ídýfu úr sýrðum rjóma, hummus eða guacamole
Zucchini- eða gúrkusamloka með túnfiskalati eða hummus
Hrískaka eða maískaka með hnetu- eða möndlusmjöri (og bönunum)
Ávaxtasalat - tilvalið að blanda saman hefðbundnum ávöxtum (appelsinur, epli, perur), exótískum ávöxtum (mangó, ananas, kíwí), melónu og berjum. Svo er hægt að toppa með smá grískri jógúrt og múslí.
Ávaxtaíspinnar - mauka saman ávöxti og sætu (t.d. stevíu eða agave sírópi).
Hægt að hafa þá lagskipta með því að gera nokkrar mismunandi blöndur og frysta í þremur pörtum.
Ávaxtaíspinnar - mauka saman ávöxti og sætu (t.d. stevíu eða agave sírópi).
Hægt að hafa þá lagskipta með því að gera nokkrar mismunandi blöndur og frysta í þremur pörtum.
Smoothie - t.d. möndlumjólk/rísmjólk/grískt jógúrt + ávextir (ferskir eða frosnir) + haframjöl/hnetur + örlítið hunang, agave síróp eða stevía
Granólastangir - best er að útbúa þær sjálfur þar sem það leynist oft sykur eða síróp í stöngum sem fást út í búð
Hnetublanda (t.d. möndlur, heslihnetur, kasjúhnetur, rúsínur,
þurrkaðir ávextir og gojiber).
Það þarf að passa magnið þar sem hnetur eru
hitaeiningaríkar.
Þetta er mjög hentugt nasl til að setja í poka og geyma í veskinu, bílnum, vinnunni o.s.frv.
Hollustukúlur - stundum langar manni hreinlega í eitthvað aðeins betra og þá er gott að eiga svona kúlur í frystinum og taka eina og eina út.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli