Eitt það leiðinlegasta sem ég geri er að pakka í ferðatösku. Ég enda vanalega á því að vera að pakka á allra síðustu stundu og taka allt of mikið með mér. Í einni sólarlandaferðinni var pökkunin gerð i svo miklum flýti að ég gleymdi að taka með stuttubuxur og pils, þið getið ímyndað ykkur neyðarástandið - sem endaði þó á því að ég þurfti að versla mér nýjar stuttbuxur og pils, en leiðinlegt ;) Eftir þá ferð einsetti ég mér að reyna að koma meira skipulagi á pökkunina. Ég hef því miður lent einum of oft í að þurfa að borga fyrir yfirvigt - enda ekki sniðugt að fara út með fulla tösku í verslunarferð. Þar sem ég er að fara til London í næstu viku þá vil ég helst fara með sem minnst út svo ég geti nú tekið með mér fullt af nýju góssi heim.
Hér eru nokkur ráð sem ég reyni að fara eftir þegar ég pakka:
Veður & aðstæður
Gott er að tékka veðurspána áður en haldið er af stað. Einnig er gott að pæla aðeins í því sem maður er að fara að gera og pakka eftir því.
Raða saman outfittum
Aðalmálið er að hugsa í outfittum frekar en að pakka niður stökum flíkum. Ég legg fötin á rúmið og reyni helst að láta flíkurnar passa með hvorri annarri svo ég komist upp með að fara með sem minnst með mér.
Byrja á basic flíkum
Best er að byrja á að taka saman flíkur sem auðvelt er að para saman við annað. Svo er hægt að blanda trendý flíkum við grunnflíkurnar.
Skart & fylgihlutir
Notið skart og fylgihluti til að setja punktinn yfir i-ið. Stundum er hægt að breyta outfiti frá degi til kvölds aðeins með því að nota skart og fara í aðeins fínni skó.
Dæmi um hvernig hægt er blanda saman ólíkum outfittum með eins fáum flíkum og mögulegt er
Engin ummæli:
Skrifa ummæli