Í vor klippti ég hárið á mér nokkuð styttra en vanalega, um rétt fyrir ofan axlir. Ég var mjög ánægð með breytinguna og fann strax mun á því hversu hárið varð léttara og meðfærilegra. Mér fannst það líka verða líflegra og ég þurfti ekki að hafa eins mikið fyrir því. Ég var búin að vera með mjög sítt hár í svolítinn tíma þannig þetta var kærkomin tilbreyting. Ég er hins vegar núna alveg til í að safna aðeins aftur en svo er aldrei að vita nema ég klippi það aftur styttra næsta vor. Hér eru nokkrar sem púlla það mjög vel að vera með hár í styttri kantinum.
fimmtudagur, 14. nóvember 2013
þriðjudagur, 12. nóvember 2013
MARMARI
Ég er komin með æði fyrir marmaraáferð. Ég hef verið að sjá undanfarið mikið um marmarabakka, sem og marmaraborð, -veggi og -borðplötur. Marmarinn virðist allavega vera orðinn mjög vinsæll hjá ýmsum heimilisvörumerkjum eins og t.d. Bloomingville og Ferm Living, sem býður m.a. upp á marmarveggfóður!
Marmarabakki frá Bloomingville
Þetta iPhone hulstur er á óskalistanum, fæst hér
mánudagur, 11. nóvember 2013
CAMEL KÁPUR
Camel litaðar ullarkápur virðist vera nýjasta vetrartrendið, þær hafa verið að sjást úti um allt á tískubloggum, street style síðum sem og á stjörnunum. Kápurnar koma í allskonar gerðum, ýmist víðar eða aðsniðnar, stuttar eða síðar.
þriðjudagur, 5. nóvember 2013
TAPE
Það er mjög einfalt og ódýrt að gera veggskreytingar með teipi. Það er til dæmis hægt að nota litrík washi límbönd, en þau fást til dæmis í Söstrene Grene og Tiger. Hægt er að gera alls konar mynstur með teipinu, og svo er einfaldlega hægt að rífa það niður þegar maður vill breyta til. Einnig finnst mér koma mjög flott út að nota teipið til að ramma inn myndir.
mánudagur, 4. nóvember 2013
TORN
Aðalmálið í dag virðast vera rifnar gallabuxur. Oftast eru þær svartar eða dökkar, og með einni til tveimur smekklegum rifum á hnjánum. Mér finnst þetta nokkuð töff, spurning hvort maður fórni einum buxum til að fylgja trendinu!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)