mánudagur, 26. ágúst 2013

EINLITA OUTFIT

Í síðustu viku bloggaði ég um hversu flott er að blanda saman ólíkum skærum litum. Ég hef hins vegar einnig verið að taka eftir að tískubloggarar og street style síður eru að birta myndir af outfittum sem eru í sama litnum, en kannski mismunandi tónum af þessum ákveðna lit. Þetta er lúkk sem ég hefði haldið að væri too much en þessar hér að neðan sýna að þetta getur vel virkað.




laugardagur, 24. ágúst 2013

HEILBRIGÐUR LÍFSTÍLL

Ég er búin að vera ansi löt í hreyfingunni síðustu mánuði, ég frysti líkamsræktarkortið mitt yfir sumarið þar sem ég ætlaði að vera dugleg að fara út að hlaupa - en vegna slæms veðurs og annarra afsakana þá varð lítið úr þeim plönum. Þann 1. september fer kortið aftur í notkun og þá ætla ég að hreinsa til í mataræðinu í leiðinni og temja mér hollari lífstíl.

Heilbrigður lífstíll hefur svo mikil domino áhrif, um leið og maður fer að hreyfa sig, þá langar manni að borða hollari mat, verður jákvæðari, sjálfstraustið verður meira o.s.frv. Þetta tengist allt innbyrðis og eitt leiðir af öðru. Alveg eins og óheilbrigður lífstíll hefur margvísleg neikvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Þess vegna er svo mikilvægt að taka allt inn í jöfnuna - svefninn, hreyfingu, mataræði og jákvæðni.




föstudagur, 23. ágúst 2013

DIY: KRÍTARTAFLA

Krítarmálning hefur verið vinsæl undanfarið og notuð á heilu veggina sem og á skápa- og skúffuhurðir. Til að vera ekki bundinn við heilan krítarvegg þá er líka sniðugt að gera krítartöflu og setja í áberandi ramma. Það getur komið flott út að nota svolítið gamaldags ramma, t.d. kíkja í Góða hirðinn og jafnvel mála eða spreyja rammann í öðrum lit. Töfluna er síðan hægt að nota til að kríta jákvæða speki eða to-do lista!


HÉR eru leiðbeiningar sem sýna hvernig hægt er að gera krítartöflu
 





 
Vídeó með leiðbeiningum:
 
 

fimmtudagur, 22. ágúst 2013

GLIMMER EYELINER

Það getur flott að poppa upp á svarta eyelinerinn með því að nota glimmer eyeliner meðfram.




þriðjudagur, 20. ágúst 2013

OFFICE SPACE

Ég elska að skoða flottar skrifboðsaðstöður. Ef það er fallegt í kringum mann þá gengur vinnan eða lærdómurinn svo miklu betur. Hreint og skipulagt umhverfi skiptir þar miklu máli, og einnig að rýmið sé stílhreint og bjart. Það er möst að vera með alla aukahluti í tímaritahirslum og boxum svo það sé pláss á borðinu. Það kemur líka ótrúlega vel út að hafa fallegar myndir á veggnum fyrir framan sig þegar maður hefur þörf á smá innblæstri - eða hafa fallegt útsýni út um gluggann :)


 







mánudagur, 19. ágúst 2013

SKÆRIR LITIR

Íslendingar eru ekki þekktir fyrir mikla litagleði en á sumrin lýsir þó yfir og fólk fer að þora að klæðast meiri litum. Ég dáist þó að þeim sem þora að blanda saman fleiri en einum skærum lit. Það kemur hins vegar ekkert alltaf vel út þar sem það er smá tækni að blanda saman litum án þess að líta út eins og litasprengja. Velja þarf liti sem tóna vel saman og hafa sumir einfaldlega betra auga fyrir litasamsetningum en aðrir. Hér eru nokkrar hugmyndir að skærum litasamsetningum sem heppnast vel.









sunnudagur, 18. ágúst 2013

PÖKKUNARRÁÐ



Eitt það leiðinlegasta sem ég geri er að pakka í ferðatösku. Ég enda vanalega á því að vera að pakka á allra síðustu stundu og taka allt of mikið með mér. Í einni sólarlandaferðinni var pökkunin gerð i svo miklum flýti að ég gleymdi að taka með stuttubuxur og pils, þið getið ímyndað ykkur neyðarástandið - sem endaði þó á því að ég þurfti að versla mér nýjar stuttbuxur og pils, en leiðinlegt ;) Eftir þá ferð einsetti ég mér að reyna að koma meira skipulagi á pökkunina. Ég hef því miður lent einum of oft í að þurfa að borga fyrir yfirvigt - enda ekki sniðugt að fara út með fulla tösku í verslunarferð. Þar sem ég er að fara til London í næstu viku þá vil ég helst fara með sem minnst út svo ég geti nú tekið með mér fullt af nýju góssi heim.


Hér eru nokkur ráð sem ég reyni að fara eftir þegar ég pakka:

Veður & aðstæður
Gott er að tékka veðurspána áður en haldið er af stað. Einnig er gott að pæla aðeins í því sem maður er að fara að gera og pakka eftir því.

Raða saman outfittum
Aðalmálið er að hugsa í outfittum frekar en að pakka niður stökum flíkum. Ég legg fötin á rúmið og reyni helst að láta flíkurnar passa með hvorri annarri svo ég komist upp með að fara með sem minnst með mér.

Byrja á basic flíkum
Best er að byrja á að taka saman flíkur sem auðvelt er að para saman við annað. Svo er hægt að blanda trendý flíkum við grunnflíkurnar.

Skart & fylgihlutir
Notið skart og fylgihluti til að setja punktinn yfir i-ið. Stundum er hægt að breyta outfiti frá degi til kvölds aðeins með því að nota skart og fara í aðeins fínni skó.





Dæmi um hvernig hægt er blanda saman ólíkum outfittum með eins fáum flíkum og mögulegt er

laugardagur, 17. ágúst 2013

MILLIMÁL

Millimál eru frekar erfið þegar maður er að reyna að halda sig á hollu línunni, enda oft auðveldara að grípa í óhollustu milli mála en hollustu. Það þarf þó ekki mikla fyrirhöfn til að græja hollt og gott millimál.


Epli með hnetusmjöri

Grænmeti (agúrka, gulrætur, sellerí, paprika) með hollri ídýfu úr sýrðum rjóma, hummus eða guacamole

Zucchini- eða gúrkusamloka með túnfiskalati eða hummus

Hrískaka eða maískaka með hnetu- eða möndlusmjöri (og bönunum)

 Ávaxtasalat - tilvalið að blanda saman hefðbundnum ávöxtum (appelsinur, epli, perur), exótískum ávöxtum (mangó, ananas, kíwí), melónu og berjum. Svo er hægt að toppa með smá grískri jógúrt og múslí.

Ávaxtaíspinnar - mauka saman ávöxti og sætu (t.d. stevíu eða agave sírópi).
Hægt að hafa þá lagskipta með því að gera nokkrar mismunandi blöndur og frysta í þremur pörtum.

 Smoothie - t.d. möndlumjólk/rísmjólk/grískt jógúrt + ávextir (ferskir eða frosnir) + haframjöl/hnetur + örlítið hunang, agave síróp eða stevía

Granólastangir - best er að útbúa þær sjálfur þar sem það leynist oft sykur eða síróp í stöngum sem fást út í búð

Hnetublanda (t.d. möndlur, heslihnetur, kasjúhnetur, rúsínur, þurrkaðir ávextir og gojiber).
Það þarf að passa magnið þar sem hnetur eru hitaeiningaríkar. 
Þetta er mjög hentugt nasl til að setja í poka og geyma í veskinu, bílnum, vinnunni o.s.frv.

Hollustukúlur - stundum langar manni hreinlega í eitthvað aðeins betra og þá er gott að eiga svona kúlur í frystinum og taka eina og eina út.

föstudagur, 16. ágúst 2013

DIY ART

Hvítir veggir eru sérlega óspennandi enda miklu skemmtilegra að vera með flottar og áhugaverðar myndir og listaverk á veggjunum, hvort sem það eru ljósmyndir eða málaðar myndir. Þar sem maður hefur nú ekki alltaf efni á dýrum listaverkum þá er alltaf hægt að virkja hugmyndarflugið og gert myndir sjálfur - enda miklu persónlegra. Hér eru nokkrar hugmyndir sem ættu að vera tiltölulega einfaldar, en annars eru möguleikarnir óteljandi þegar maður hefur tómann striga fyrir framan sig!
 


 
Efni heftað á striga

 Hér er þumallinn notaður til að gera punkta
 


Þetta finnst mér einstaklega flott! 
Oft þarf ekki meira en að para saman smekklegar litasamsetningar.


Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...